Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Birgitta Þorsteins
  • Netfang: birgittathorsteins@hot.
  • Staður: Siglufjörður
  • Símanúmer: 8661975
  • Atvinna: djammari
  • Hjúskaparstaða: lausu

Birgitta Þorsteins

Innskráningar kubbur

engin spurning um trú.

30. nóvember 2007 klukkan 04:05
Ég ákvað að byrja ekki þetta blogg á jææææææja, eins og ég hef gert öll hin milljónustu skiptin, já ég blogga þaaaaaað oft. Allavega þá eigið þið lesendur mínir kannski þann rétt á því að vita hvað er að gerast í lífi mínu þessa dagana? Okay, ég er að fara í 6 mánaða afeitrun og meðfer í Hvalfirðinum, eftir helgi, ég klessti nýja bílinn minn í fyrradag og hann er handónýtur, ég er heppin að vera á lífi, en ég hafði þetta af, mamma og pabbi eru skilin og ég veit ekki hvar pabbi er staddur núna, mamma hélt húsinu, en áður en ég held lengra með þetta og þeir sem þekkja mig vita auðvitað þetta var eitt stórt djók. ha-ha-ha. Ég var ekki kosinn húmoristi skólans fyrir ekkert haaaaa? Eins og færi að blogga e-ð svona, tssss.
Nei það er allt gott að frétta, er stödd á Siglufirði í augnablikinu, og er well aftur flutt þangað, skutlast til þess að taka prófin mín og svo er ég alveg komin aftur, í nokkra mánuði bara, róóleg. Vantar bara pening og svona, þannig ákvað að fara bara í smá fjarnám eftir áramót og vinna, fer svo í skóla aftur í haust. Er komin með vinnu á Pizza 67 sem er mjög fínt, og svo bíð ég eftir fréttum frá Kaupþingi um vinnu þar vonandi eftir áramót. Þannig busy busy money money. Get ekki kvartað vegna peninga haaa?
Nú ef ég verið á Siglufirði í hvað, 2 vikur? Úff hvað það er lonely hérna, en það lagast bráðlega, búin að vera dugleg að stunda ljósabekkina hérna í nýju sólbaðstofunni, Norðurljós, sem er baaara flottur staður, svo snyrtilegur og flottur og geggjaðir lampar, þannig hún Sandra má alveg vera stolt af þessu hjá sér. Það bara vantar svo margt hingað, sem er ekki hægt að framkvæma vegna þetta er svo lítill staður, fínt að koma hingað til þess að slappa af og svona, æðislegt fólk hérna auðvitað, en of lítið fyrir mig, þótt ég auðvitað elska þennan stað. En núna um helgina erum ég, Una og Hafey að fara að skella okkur á tónleika með Hjálmum, sem verða haldnir á Siglufirði, ójá þið heyrðuð rétt! Nýji diskurinn þeirra er æði! Bara fallegu textarnir hjá þeim, lagið Leiðin okkar allra, er bara to die for. Ég dýrka hvað Ísland á marga sjúklega góða tónlistarmenn, og hvað Íslendingar eru fróðir um tónlist, bara ahh elska Ísland.
En jæja, hehe jæææææja. Spá í að leggja mig, er já btw. að fara á aðra tónleika á morgun, með Ellen Kristjáns og KK, ekki slæmt! Ég kveð í bili.


;;allt það sem þú hefur,
er það sem þú gefur,
nákvæmlega það sem þú munt fá,
engin spurning um trú,
þetta er lögmál og þú
getur alls ekki komist því hjá.
Birgitta Þorsteins
5 athugasemdir

Tell me how this ends.

24. október 2007 klukkan 21:18
Held að það sé kominn tími til þess að ég setjist hérna fyrir framan tölvuna og geri e-ð af viti?
Læra?
Nei auðvitað er ég tala um e-ð muuun meira gagnlegra og fallegri hlut en lærdóm, ég er að tala um að blaðra hér í korter mínu tilgangslausa rugli og vista það á netið. Mjög sniðug hugmynd. Ég er allavega ekki dauð, ennþá, hef bara verið svo upptekin af lærdómi og að bjarga heiminum og þannig hlutir. Og þeir sem eru virkilega að lesa þetta vita að það er bunch of bullcrap. Nei ég hef nú ekki verið mikið upptekin þessa daga, eða jú, ég hef auðvitað verið mjöööög svo upptekin í að sitja í sófanum mínum og horfa á family guy síðustu 2 mánuði, það tekur mikið á og bara sorry hef ekki tíma fyrir ykkur hin! Nei þar sem hún ástkæra móðir mín og aðrir ættingjar sem skipta litlu máli eins og Bella móðursystir mín lesa þetta blogg þá verð ég nú að segja að ég hef líka verið í skólanum og svona skemmtilegheit. Önnin er semsagt hálfnuð hjá mér og so far so good, búin að fara í nokkur próf og bara gengið vel, og nokkur stór verkefni sem gilda alveg 20% af lokaeinkunn eins og í ensku og íslensku, fékk 9,2 fyrir enskuverkefnið og 8 fyrir íslenskuna, svo gengur sálfræðin mjög vel ásamt spænskunni, gaman í henni, vildi óska þess að ég gæti sagt það sama um stærðfræðina og dönskuna en því miður gengur mér ekki vel í þeim pakka. En ætla og skal ná þessu, hef hingað til ekkert fallið í neinu og ætla nú aldeilis ekki að fara útí það núna. No way hosey.
Ég sótti um vinnu á strikinu um daginn, fékk vinnuna og bara flott, eeeeen nei, kemur svo ekki einhver frænka aðalgaursins þarna og fær vinnuna mína, ekki sátt. Þannig í dag sótti ég um vinnu hjá Gallup og fer í starfsviðtal á föstudaginn, reason to wear my spariföt you know. Blikka gelluna bara og ég verð golden með vinnuna sko. En það er semsagt allt gott að frétta af mér hérna í sunnuhlíðinni, fer svo til sigló á föstudaginn og ætla að draga hana Áslaugu mína með mér, bara get ekki verið án hennar, verður bara að koma með mér þessi elska. Svo ef ég fæ vinnuna þá ætla ég strax eftir helgi að kaupa mér kort í ræktina og svo kort í ljós og vera geggjað tanaður massi. Er það ekki planið Áslaug?
En veit ekki hvað annað ég get sagt ykkur? Jú ég er komin á nýjann bíl, Huyndai Getz, mjöög sætur og æðislegur bíll, auðvitað búin að skýra hann, Shay "Angus" Alexander. Hann er töffari. Like the owner you know. En jæja, ég er farin að lykta til Varmahlíðar, ætla í sturtu.
Blessó.

BTW. Nokkrar myndir í Akureyri nýlegt & e-ð.
Those are all very beautiful words
But actions speak louder
In case you haven't heard, I'm all alone
While you're out on the town drinkin' with your friends
You can say all these beautiful things
But they don't mean nothing
Gotta back it up
But you keep backing down
Tell me how this ends

If you think it's possible then anything is possible
But I think you're impossible
I hope you prove me wrong

You only call me after you've had a few
You only want to hang out when you've got nothing to do
Don't tell me you love me and act like you don't
If you really want me you just gotta let me know
Birgitta Þorsteins
6 athugasemdir

i'll confess all of my sins, after several large gins.

13. september 2007 klukkan 15:43
Jæja, það hlaut að koma að því að ég fengi netið hér í sunnuhlíð 23, very nice. Þetta er alveg geggjuð íbúð, ekkert smá cozý. Er búin að vera í skólanum núna í e-ð 3 vikur, og er alveg bara blahhh, þetta er stundum svooo leiðinlegt, til dæmis danska og stærðfræði, 2 fög sem ég mun aldrei kunna. Er í spænsku, það er geggjað, næ henni alveg ágætlega, me llamo Birgitta y no tengo de nero! Sleip í spænskunni.
Það er svo sem ekkert spennandi að frétta af mér, er samt að farað kaupa mér nýjann bíl, þessi ekki alveg að standa sig, er bara hrædd við hann, svona Herbie dæmi.
Það er svo skrýtið að vera bara e-ð ein að leigja, ekki að það sé ekki nææææs, bara setja í þvottavél, og ganga frá þvottinum, og vaska upp og elda og þannig, sakna mömmu, haha. En mér finnst þetta ótrúlega gaman, halda íbúðinni hreinni, elska að hafa allt fínt, svo cozý íbúð, ætla að setja nokkrar myndir hérna.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

looove it.
anyway, þá ætla ég að farað versla e-ð, er svangur.
blogga þegar það er e-ð meira skemmtilegt frá mér að heyra
later
Birgitta Þorsteins
6 athugasemdir

live like it's the last day you'll ever see.

20. ágúst 2007 klukkan 21:19
Ætlaði bara að segja að ég er að farað flytja á morgun þannig að ég verð örugglega ekki með netið í einhvern tíma, þannig búhú for you.
Þetta sumar er búið að vera alltof fljótt að líða, geggjað sumar samt. Geggjað veður allann tímann og bara good times.


;;everybody sing like it's the last song you will ever sing.
everybody live like it's the last day you will ever see.

later dudes.
birgitta xx
Birgitta Þorsteins
Engin athugasemd

there's no time to focus on time

25. júlí 2007 klukkan 17:33
Okay okay okay, freka fólk, is this what you want?
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér, að ég sést varla annarsstaðar en í vinnunni. Er að vinna í kirkjugörðunum frá 8-17 og svo á videoval frá 19-21. Svo er líka bara gott að blogga einu sinni í mánuði? Ég meina þá hefur eitthvað mikið gerst annað en að blogga á hverjum degi, þá hef ég e-ð að blaðra um...
Eins og flestir kannski vita þá ætla ég að halda áfram í vma og er að farað leigja, fékk íbúð í sunnuhlíð, flott íbúð þannig það verður fjör. Efast um að mamam og pabbi halda að ég eigi eftir að ganga vel um, ég auðvitað geng ég vel um e-ð sem ég á ekki! og þríf, get nú ekki hugsað mér um að lifa í skítugri íbúð. Svo ætla ég að finna mér einhverja vinnu með skólanum, nennnni samt ekki í þjónustustarf, það er það leiðinlegasta ever! Vonandi finn ég e-ð almennilegt.
Heyrðu, ég fór á tónleika með Ragnheiði Gröndal á laugarsaginn síðasta, ég hef aldrei heyrt neitt með henni nema 'Ást' og 'Með þér' sem eru auðvitað bara frábær lög, en það sem hún var að syngja þarna, óútgefið mest ásamt öðru, bara kassagítar og hún, blús, jazz, folk og svo þjólagalög inná milli, þetta var bara ein besta tónlistar upplifun ever, orð mín geta ekki lýst þessu, þetta var svo heavy flott og bara ótrúlegt, röddin sem manneskjan hefur, guð minn góður. Langar ekkert smá í þessi lög, hún er að fara að gefa þetta út held ég bráðum, það verður sko money well spent, man eftir 2 sérstaklega góðum lögum, Black coffee var mitt uppáhalds uppáhalds, svo var það Smoke Bay Town, sem fjallaði svona um Reykjavík og þegar skemmtistaðurinn brann, þetta voru ekta svona lög sem ég vil hlusta á þegar ég er í rólegheitunum, að spjalla við skemmtilegt fólk, fá sér kaffi eða e-ð, ást.
En já, þetta sumar er búið að vera best, bara gott veður allann tímann, ótrúlegt, alltaf sól, enda komin með þvílíka bóndabrúnku, er alltaf bara í bol í vinnunni, og ég hef aldrei verið vör við svona mikið af geitungum hérna áður, enda var ég stungin í hmm gær? Rétt fyrir ofan augað, var ekki smá bólgin, bara fyndið, það var eitt bú fyrir utan gluggann minn, eða réttara sagt á milli klæðningarinnar og veggsins mín, samt búið að taka það, eitraði í gær. Annað en við gerum í vinnunni, bara hellum bensíni á það og kveikjum í því :p
Svo er ég tognuð núna, missteig mig svo svakalega í vinnunni í morgun, og já, svo er ég búin að fá fugl, veii, dísarfugl sem heitir Sóley, henni líkar samt ekkert voða vel við mig.
En nenni ekki að blogga meira, ætla í sturtu og svona áður en ég fer aftur í vinnuna, later.
Birgitta Þorsteins
6 athugasemdir

..your hands are mine to hold

19. júní 2007 klukkan 00:55
Ég? Latur bloggari?
Ekki séns.
Allavega þá fann ég mér tíma til þess að setjast niður hér fyrir framan tölvuna og motherfucking blogga. Búin að fá nokkrar kvartarnir um að ég hafi ekkert bloggað lengi, en jæja, lesið þá þetta and eat shit. Anyway, hvað er að frétta af mér? Úfffff... Ég komst inn í Flensborg og hef enn tækifæri til þess að komast inn í VMA, þannig. Ég er búin að ákveða mig, og stend við það. Ég er búin að setja inn myndir, e-ð bland bara, langt síðan ég hef sett inn myndir, en ætla að vera duglegri með það.
Um helgina kom Alma og sótti mig til Sigló, og við fórum saman til Akureyrar, ásamt Díönu, og svo fóru Örri, Birkir og Siggi Ó. með og voru yfir helgina, það var baaaaara stuð, bíladagar, óóójáááá. Djöfull var bærinn fuuuullluuur af fólki, það voru allir þarna! Shit hvað það var fucking gaman, fórum á Sjallann og vorum svo bara að hitta fólk og djamma. Hitti alveg shit mikið af fólki þarna, sem maður bjóst ekki við að sjá! En já, það var shit gaman.
Ég er bara núna að drekkja mér í vinnu, það er best, tíminn fljótari að líða, er að vinna í kirkjugörðunum frá 8-17 og svo á sjoppunni frá 19-21, og vinn svo aðra hverja helgi á sjoppunni, það er fínt, fæ allavega veeeel útborgað, þannig ég er glöð. Ég fer í vinnuna, kem heim og legg mig eða e-ð, fer aftur í vinnuna, heim, glápi á tv og sofna, vinna, sofa, vinna, sofa.. Vinnan er lengi að líða en svefninn svo fljótur, að mér líður eins og ég sé alllltaaaf að vinna. Ég kvarta ekki, ég elska að sofa, og ég elska að eiga pening? So..?
En jæja, ég ætla að farað sofa, kominn tími til, get ekki farið seinna að sofa en þetta, þá er ég bara ónýt og óvinnufær. En ætla að farað taka mig á í blogginu, i know, ég er alltaf að segja þetta, haha, en whatever, verið bara dugleg að ýta á eftir mér ;D
birgitta.

;;when are you gonna keep it strong?
move along like i know you do
and even when your hope is gone
move along just to make it through.
Birgitta Þorsteins
10 athugasemdir

i guess i must have messed it up..

22. maí 2007 klukkan 00:08
kannski tími fyrir smá blogg?
nennti ekkert að blogga fyrr en ég væri búin að fá einkunninar, sem ég er búin að fá loksins núna, og viti menn ég náði öllllllu! djöfull er maður gáfaður. við erum að tala um....
saga 103 - 6 (já okay 6, en c'mon, þetta voru 200 blaðsíður sem átti að lesa undir próf, og það er ekki eins og þetta séu e-ð stórir stafir, heldur lítið letur, ásamt því hvað sumt af þessu er svooo ekki spennandi + mjöög léleg mæting)
stæ 122 - 5 (já, já, hafiði farið í þessa stærðfræði? ekkert þaað auðvelt, nema þegar maður leggur sig fram, sem ég gerði heldur seint, en margir segja að þetta sé einn af erfiðustu áföngunum)
félagsfræði 203 - 7
íslenska 202 - 7
enska 203 - 7
íþróttir - 7
heimspeki - 7 (léleg mæting, samt eru þetta æðislega gaman, bara þeir voru alltaf fyrstu tímarnir, og ég og vekjaraklukkur, skulum bara segja að það er ekki auðvelt að vekja mig.)
og svo lífsleikni, það standast allir það, fær bara S sem þýðir staðið.

 Ætti samt að þakka henni Önnu fyrir að ég náði stærðæði 122, og ég er svo fegin að hafa næað og btw. stolt af mér því þangað til í lok annarinnar var ég svo að SKÍTA á mig í stæ, en fékk svo hjálp og virkilega lagði mig fram þá tókst þetta, oh so glaaad.
svo er það bara hanga og sitja heima og hlusta á tónlist og bora í nefið þangað til ég fæ að vinna, langar að vinna! er að bíða eftir svari hjá BÁS um hvort ég fái vinnu þar í sumar, sem ég efast því það er svo lítið að gera þar e-ð, þá fer ég í slátturliðið en það byrjar ekki fyrren 15.júní! ekki sátt, langar að vinna, þarf að borga reikninga skal ég sega ykkur, en er að vinna á videoleigunni á meðan, en 2-3 tímar á dag er voða lítið, og ég þoli ekki þjónustustörf, nema sum eru kannski í lagi, en málið er að mig vantar einhverja aukavinnu til 15.júní, ef ykkur dettur e-ð í hug endilega let me know.
svo er það næst á dagskrá að reyna að kíkka til reykjavíkur áður en ég flyt, langar að kíkka bráðum því það er svo langt síðan ég fór síðast, ooog kíkka yfir helgi, 3-4 daga, og fara svo ekkert aftur fyrren ég flyt, sem er í ágúst, og vinna eins og brjálæðingur þangað til. en get ekkert kíkkað þangað fyrr en eftir 15.júní, því þá vinn ég ekki um helgar, eða ekki allar helgar. eitthvað annað sem ég get blaðrað um?
hmm, er bún að fá ný gleraugu, notaði hin aldrei, var bara alltaf með linsur, sem ég fékk alveg ógeð af, úfff.. en já, stórar fréttir? ég veit. og svo já, Örri er fluttur í bæinn sem er bara kúl því hann er bara bestasti vinur minn, sá hann alltof sjaldan.
en jæja, annars hef ég ekkert neitt mikið meira að blaðra um, ætla samt að farað blogga meira, var að einbeita mér að prófunum og þannig, en þú eru þau búin og ég flutt frá akureyri, verð nú samt að segja það þótt að ég þoldi ekki að vera þarna stundum, að þetta er nú bara góður bær, skemmtilegt fólk, eða allavega því sem ég kynntist, á eftir að sakna þeirra, en er nú ekkert það langt í burtu í augnablikunu.
birgitta farin, horfa á simpsons og soofna, later.

everynight with my star friends,
we eat caviar and drink
champagne
sniffing in the VIP
area.
to be famous is so nice, suck my dick, kiss my ass,
in limousines we have sex,
everynight with my famous friends

Birgitta Þorsteins
7 athugasemdir

..svo gott að vera til

02. maí 2007 klukkan 14:33
Já veistu, ég held að það sé kominn tími til þess að ég setjist hérna niður og tjái mig eitthvað.
Allavega þá hef ég lengi verið að spá í að prófa að fara til reykjarvíkur í skóla, og hef alltaf samt verið smá smeik við að fara í nýjann skóla með fólki sem ég þekki ekki neitt, erfitt svona fyrst en hey, life is about taking chances. Þannig að næsta haust eða í ágúst þá flyt ég til hafnafjarðar til Birkis og Thelmu. Ég hlakka svo til, aðeins að breyta til. Fara svo að vinna og auðvitað í skóla líka, hef ekki enn ákveðið hvaða skóla, vil ekki fara í bekkjakerfi, og vil hafa hann helst ekkert of langt í burtu. En það kemur í ljós.
Ég er alveg komin með nóg af akureyri, þótt þetta sé flottur staður og vma æðislegur skóli, þá bara æjj veit ekki, langar bara suður.
En nóg um það, it's gonna be great.
Ég kíkkaði til sigló í gær, sooo goood. Vaknaði um morgunin eitthvað svo pirruð og byrjaði að pakka niður og bara ætla heim! Kom við á króknum til að fá hana eddu til að koma mér í gott skap, sem hún gerði því við getum talað svo endalaust mikið saman um hluti sem við elskum og sammála um allt, love it. Hún ákvað að koma með mér til sigló, og varð í eina nótt, svo var svo gott veður og ahh æði, sátum bara út á palli hjá mér nokkur að hlusta á tónlist og bara loving life. Svo skutlaði ég eddu á krókinn og fór svo aftur inn á ak, hlustandi á bob marley alla leiðina, elska að hlusta á hann, þá bara tæmist hausinn á mér og bara ahhh, no worries. Love it.
En ég er farin að þrífa bílinn aðeins, later.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Birgitta Þorsteins
5 athugasemdir

hmmm..

24. apríl 2007 klukkan 22:22
ótrúlegt hvað þú þráir alltaf mest það sem þú getur alls ekki fengið. og það sem er til boða er aldrei nógu gott handa þér, og einhverneginn nærðu alltaf að setja út á og finna galla við það sem þú hefur.
Þegar kemur að því að ákveða hlutina þá eru það alltaf kostir og gallar við ákvörðunina þína, þar sem þú lærir að fyrstu ákvörðunnunni og gerir þá seinni ákvarðarnir í lífinu að meiri varúð. Ekki flýta þér að ákveða hlutina, því það getur leitt til þess að þú veljir augljósa kostinn og fari eftir huga þínum í stundarbrjálæði, og átt eftir að verða vonsvikinn í endann.
Í endann sérðu að allann tímann hafðiru eitthvað sem þú þráðir allann tímann, þar sem þú varst of þrjóskur til að sætta þig við það.
Ekki vera hræddur um að taka áhættu, til þess er lífið, og gerir það mun skemmtilegra og áhugaverðara. Ekki vera hræddur um að lifa lífinu.

;;anyway þá er ég hætt í bili, verð að læra, það er samt svo erfitt að lækka í tónlistinni og fara að læra.

birgitta out. ;)
Birgitta Þorsteins
3 athugasemdir

..i'm a fool for you

19. apríl 2007 klukkan 11:26
Það hlaut að koma að þessu, auðvitað þurfti ég að jinx-a þessu með því að segja "hey ótrúlegt, ég ehf ekkert verið lasin alla þessa önn" og hvað gerist daginn eftir? Get varla opnað augun vegna ógeðs þar, get varla talað vegna hálsbólgu og raddleysis, ógleði, magaverkur, beinverkir, hausverkur on so on. Þannig í gærmorgun þá hringdi ég í mömmu og bara "mig langar í mömmu!" og ég keyrði til Siglufjarðar í gær og fer ekki aftur fyrren á sunnudaginn, nice. Fyrir utan það lasin parturinn en er vonandi öll að koma til.
Það styttist í prófin, úff. Það er svo stutt eftir af skólanum elska það, en verður samt óglatt við hugsunina að prófin séu að ganga í garð. En ég ætla að ná þessu öllu! ÆTLA OG SKAL OG GET.
Það er bara spurning um að leggja sig fram, ójá.
Eins og allir vita þá vann vma á söngvarkeppni framhaldskólanna, það var snilld, og ballið var geggggjað, haha þó sumir nú muna ekki eftir því? Hver skyldi það vera, hahahahaha. Svo fer að styttast í sumarið, nú sumardagurinn fyrsti í dag, en það er ekkert merkilegt, ég segi það vegna þess að ég sé nú bara snjó allsstaðar þar sem ég lít út þannig..
Þegar ég kom heim í gær, þá tók pabbi bílinn minn og þreif hann allann, og mamma gaf mér pening til að fylla bílinn af bensíni, og ég kom bara heim í dekur skal eg segja ykkur, heavy nice. Það er svo þæginlegt að koma heim, slappa af. Það fyrsta sem ég gerði reyndar var að fara uppá leikskóla og ná í Margréti Brynju, hafði ekki séð hana í 5 vikur!! Hún gaf mér þetta stóra knús og kyssti mig, algjör dúlla. Bella á fullkomna krakka, Hlynur og Margrét, hvernig ferðu að þessu kona?
Hey já, ætlaði að minna á nýju síðuna okkar stelpnanna ---> vistlingar.bloggar.is svona þegar okkur leiðist á vistinni, sem er já oft, þá eigum við til að blogga um merkilega og litríka líf okkar.
En jæja, held að þetta sé komið gott?
Ætla að fara upp og horfa á mynd undir sæng.
Later
birgitta.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

;;i thought i was a fool for no one.
but honey i'm a fool for you.
Birgitta Þorsteins
5 athugasemdir