04. apríl 2007 klukkan 14:39
Jæja, þá hlaut að koma að því að ég sit hér fyrir framan tölvuskjáinn og hef akkurat ekkert að gera. (er akkurat rétt skrifað svona, er það partur af íslensku yfir höfuð?? Virðist vera svo asnalegt að sjá það, hmmmm, pæling.) Kannski að ég punkti niður nokka punkta hvað ég hef verið að gera síðan páskafríið byrjaði? Svona ef fólk vill vita, ég er viss um það, lifi svo spennandi lífi! ;D
Það sem ég hef gert so far í páskafríinu;
Kom heim á föstudaginn, fékk æðislegann mat auðvitað hjá elskulegu foreldrum mínum.
- Fór í ræktina á laugardaginn og svo í sund með Unu & Ollu sætu.
- Rúntaði og rúntaði ennþá meira, því ég er loksins komin með bílprófið.
- Búin að borða mikið að junk-food á bensínstöðinni því þar er besti junk-food ever!
- Hrefna sææta kom í bæinn og búin að vera með henni upp á síðkastið.
- Sund á hverjum morgni!
- Fór á krókinn í gær, endajaxltaka, er svo hrædd við tannlækna að ég titraði og titraði í stólnum hjá honum.....
- Fór inná Akureyri með pabba, og við keyptum okkur bæði bíl !!
- Hvítur Opel Astra-G-CC 16V, 100 hestöfl, árgerð 2000, 1600 vél, sjálfskiptur, 5 dyra, ekinn 78 þús km, stendur fyrir utan Hvanneyrarbraut 13 og eigandinn er já... ég !! So happy I could die ;D
- Mamma og pabbi keyptu sér Hyundai Tuscon, dökkblár og sjálfskiptur, og þau elska hann.
- Una Dögg og Gunna Finna komu í bæinn í fyrradag, gaaaaman að sjá þær.
- Páll Óskar í kvöld ???
- Vaknaði klukkan 10, fór í ræktina og sund með Hrefnu, og fórum heim og horfðum á Rent, ást.
- Kíkkuðum rúnt, fólk komið í bæinn, niiice.
- Birkir og Thelma koma á föstudaginn.
- Jara á morgun?
Jáhá...
Þannig þetta frí er bara so far so good. Þarf bara að læra e-ð, klára Hrafninn, ææææl.
Já, ég var að láta Hrefnu horfa á Rent, hún hafði ekki séð hana! Þetta er svo uppáhaldsuppáhaldsuppáhalds myndin mín! Orð geta ekki lýst minni ást á henni, þetta er bara svo æðisleg lög, textarnir svo fallegir og meika svo mikið sens, I could go on and on and on.
Held að ég fari bara að leggja mig, ætla að vera driver í kvöld, allir blindfullir að fara á Palla, hehe.
Ætla skella einni mynd hérna af bílnum ;p

Beautiful or what? ;D
later.
birgitta.
There is no future, there is no past
I live this moment as my last
There's only us, there's only this
Forget regret, or life is yours to miss
No other road, no other way
No day but today

Birgitta Þorsteinsdóttir
28. mars 2007 klukkan 17:13
Ég blogga í kvöld my ass.
En jæja, ég er loksins sest hér niður til þess að uppfæra ykkur um mitt skemmtilega líf.
Búin að pakka e-ð niður ásamt því að taka til, sem veitti ekki af. Var búin að skrifa hér oh svo margar línur en vill svo skemmtilega til að þær bara hurfu, aaaaarghh..
Anyway, þá er ég að farað taka bílprófið á morgun, þá verklega. Það á nú ekki að vera neitt alltof erfitt, bara svara nokkrum spurningum, keyra, bakka í stæði, passa sig á hægri reglu því hún er svo andskoti lúmsk hérna á akureyri skal ég segja ykkur! Svo er það bara að passa sig að drepa ekki neinn og já, gefa stefnuljós, haha. En krakkar mínir, það verður sko rúntað um páskana. ooooohh yeeeeaah.
Ég er að segja ykkur það er svo gott veður, það er ótrúlegt hvað maður fer í gott skap við það að hafa gott veður, eina sem mig langar að gera núna er að rúúúnta með tónlistina blastaða útum allt. Thatðs the way to do it on a sunny day!
.... var að velja áfanga fyrir næstu önn, og þeir munu vera skal ég segja ykkur.. íslenska 112, enska 303, danska 202, spænska 103, náttúrufræði 113, stærðfræði 262, sálfræði 103 og jóga eða þrek. Kom ekki meiru að, eins og félagsfræði 303 og sögu 203, því þá myndi ég bara allllllltaf vera í skólanum, þannig þarf að dreifa þessu aðeins, langar bara að klára þetta, það er svo gaman að hafa þessa menntun ða baki sér, þótt maður sé nú stundum latur að læra.
..páskar, páskar, páskar, hlakka til að fara heim, birkir og thelma eru að koma, skötuhjúin búin að trúlofa sig og kaupa heila íbúð! ekki slæææmt, svo er fullt af fólki á leiðinni á sigló, right? That's the party place, DJ Páll Óskar í bíó café 4. apríl og læææti. Svo er það brettti og vinna og hafa gaman af lífinu? Ég elska lífið svo þegar það er svona gott veður, loooove it.
Mamma hringdi áðan og bara, Birgitta, Alex er að deyja! oooog ég fékk tár í augun, hún sagði að hann væri allur orðin grár og augun að detta útúr honum, og að hann væri bara öfugur og gæti ekkert hreyft sig, þannig ég sagði henni að drepa hann, því vill ekki að hann kveljist. Þannig að Alex er dáinn núna. Litli fallegi fiskurinn minn, þú varst svo svalur.

En jæja, life goes on. Nú eru bara ljótu appelsínugulu fiskarnir eftir sem ég vildi ekki einu sinni kaupa, einn af þeim er svalur, þessi minnsti, hann er orðin smá svartur nefninlega núna, kriz heitir hann.
Hahahaha, ég er virkilega búin að vera hér í djúpum hugleiðingum um fiskana mína, spes.
En ég held að það sé nú ekkert mikið meira eftir nema að kveðja og vonast um að ég drullist til að blogga bráðlega aftur? Þið bara verið að nöldra.
Komnar einhverjar myndir, frá síðustu helgi og svo e-ð síðan við árgangur '90 vorum lítil.
btw, bekkjahittingur um páskana?? sakna ykkar.
later.
bri.
Birgitta Þorsteinsdóttir
21. mars 2007 klukkan 15:23
Ætlaði bara að láta viða af myndum.
Myndir frá helginni, þær eru nú ekkert þa margar, en þó nokkrar.
Get því miður ekki bloggað því er að fara að gera e-ð félagsfræðiverkefni ásamt því að læra undir bílprófið.
Loksins búin með báða fyrirlestrana mína;
Hugmynd Descartes um tilvist guðs - Heimspeki 103 &
Siðaskiptin í Skálholti - Saga 103.
Þeir tókust bara vel, en bara það er ótrúlegt hvað ég er e-ð inní mér þegar ég á að tala fyrir framan bekkinn, eins og ég er ekki feimin?
En það er búið að vera nóg að gera, búin að fá útúr nokkrum miðannarprófum og það kom bara vel út þannig ég er alveg að standa mig sko.
Ætla að fara að læra, blogga seinna.
Birgitta.
Birgitta Þorsteinsdóttir
17. mars 2007 klukkan 16:04
Ég er að blogga, like I said, að ég mundi blogga um helgina.
Er reyndar að fara á bretti núna, missit af stelpunum áðan því að sumir voru blindfullir einhversstaðar og drápust og ekki hægt að ná á þeim fyrr en seint um daginn?
Hahahaha, en er að fara núna, úú hlakka til.
Anyways þá var bara komið heim um helgina, tekið því rólega, einum of kannski?
Ég kom heim og fyrsta sem ég byrjaði á að gera var að fá mér að éta, og ég hef ekki stoppað. Ég sit hér og sé mig fitna! Án gríns. Gegnur ekki, er að fara að kaupa mér annað kort í ræktina á mánudaginn, og ætla að vera hyperassmotherfucker næsta mánuð. Ohhh yeaah, svo þegar ég kem aftur heim um páskana, þá verð ég vonandi skinny, grönn og komin með bílprófið!! Þá verður slagur um shotgun-ið ?
..fór ekki á bretti, þarf að vinna klukkan 5 þannig það tekur sig ekki að fara, langaði svo!!
en þarf að vinna... god damn it! en fer á morgun, snemma um morguninn, wooohooo.
hef voða lítið að segja, síðustu dagar hafa verið jaa well, ekkert sérlega góðir né skemmtilegir. þoli ekki að vera í vondu skapi, þegar allt er ómögulegt, og maður nennir ekki einu sinni út úr húsi. þoli það ekki heldur þegar manni líður þannig, og verður að fara út úr húsi. pffft.
en ég elska samt hvað það er oft lítið sem tekur til þess að gleðja mann, oft þarf ég bara að hugsa um fallegu vini mína, og hvað maður á það gott, þótt maður sé ekki alltaf sáttur. ooooh boy here I go again, ég er svo fokking væmin. nei ég er bara að taka smá tíma til þess að vera þakklát, því ég er alltaf e-ð að kvarta, þótt ég fari ekkert með það lengra, held því bara fyrir mig svo fólk haldi ekki að ég sé sjálfselsk. en mér er sama, fólk má halda það sem það vil um mig, ég veit það rétta, og vinir mínir, þá er ég sátt.
en heyra í mér, blaðrandi út í allar áttir, somebody put a stop on me.
ég er alveg orðin lost í þessu bloggi.
hehe ég elska hvað maður er fucked up e-ð, t.d. með mig, þá er ég alltaf á ákveða e-ð geðveikt mikið með lífið, ekki að ég sé að hugsa e-ð langt fram í framtíðina, heldur bara e-ð svona "ohh, hvað ég ætla að vera dugleg og skipuleggja allt námið og fara eftir því" eeeða "ég ætla að grennast núna, og geri plan sem ég fer alveg eftir" og e-ð svona, maður gerir þetta alltaf svona í sérstöku stuði, eða stöðu sem þú ert í þegar þú hugsar um hvað er framundan, og hvað þú ætlar að gera lífið léttara með þessu. svo eftir þetta rush sem þú færð, þá einfaldlega nenniru þessu ekki og beilar. sama gildir með þegar þú tekur geeeðveikt vel til, og ætlar svo að halda þessu svona, og svo bara púfff, daginn eftir allllt í rúst. það skal ég segja ykkur skeður oooft við mig. sama með að grennast eða með námið, eeeen veistu, ég keypti mér kort í ræktina um daginn, og fór á hverjum degi og viti menn, ég grenntist og fékk meira segja vöðva! og svo núna, þegar kortið er búið, og ég á ekki pening, þá er ég farin að fiiiitna aftur. eeen til allra hamingju á ég yndislega foreldra sem gáfu mér annað kort í ræktina, og ég er að fara að byrja aftur á mánudaginn like a crazy monkey on steroids.
það er mjög mikilvægt að vera í góðu formi, mér finnst það, líður mun betur, sem er einmitt einn partur af því að gera lífið einhvernveginn einfaldara og betra, veit ekki alveg hvernig, en það bara gerir það. og ég ætla svo ekki að falla á einhverju á þessarri önn, og ég bara verð að verða aðeins meira skipulaggðari með lærdóminn, ekki að ég sé e-ð að ganga illa í skólanum, alls ekki, ég sinni lærdómnum, er bara alltaf á seinustu stundu með þetta, sem er ekki gott. en mér gengur samt vel, búin með nokkur miðannarpróf, og búin að fá útúr miðannarm-tunum, og er alveg með 7 og yfir í öllu, eða það er gefið í A,B,C,D og F. Og ég var með A og B í mest öllu, öllu nema stæ, þarf að fara að taka mig á þar, gengur svo helvíti í henni, stæ 122, verð að fara að fá mér hjálp þar. Annars allt hitt, þá gengur mér rosalega vel í, 2 fyrirlestrar í næstu viku, mán. og þriðjudaginn, svo er það bílprófið á fimmtudaginn, og eins gott að ég nái því, annars fer ég að gráta, enda búin að læra mikið, og ætla að halda áfram að læra meira.
læra læra læra, það er eins og lífið snúist ekki um neitt mikið annað?
ég tel samt lífið hafa mun meira gildi, þótt að menntun sé þar stór partur, ójá. og get ekki beðið eftir að ég sé búin að mennta mig alveg, og fara að vinna við það sem ég hef áhuga á, og þéna mikinn pening, og þá getur maður farið ða njóta lífsins, þótt það sé nú gott á þessum árum, svoldið svona yfirburðamikið, erfitt á þessum árum sérstaklega, tilfinningasukk og drama drama drama, name it, en hvað ætlaru að gera í því, þú verður auðvitað bara að takast á við vandamál þín, læra af mistökum þínum, og bara lifa lífinu, helst heilbrigðu, því eins og ég hef oft sagt og mun segja aftur, lífið hefur upp á svo mikið að bjóða!
En nóg af þessu bulli, ég tek af ofan fyrir þeim sem virkilega lásu þetta allt.
later.
bri.
;;just close your eyes, forget your name, forget the world, forget the people.
Birgitta Þorsteinsdóttir
14. mars 2007 klukkan 15:42
hey hey hey.
ég er hér, ég er ekki dauð!
bara búið að vera crazy mikið að gera hjá mér.
viljiði vita það??
í síðustu viku voru 3 miðannarpróf, félagsfræði, sögu og ensku.
gekk svo sem vel í þeim öllum, allavega náði þeim.
og svo um helgina var árshátíð hjá vma, það var bara heavy gaman. Fór bara á ballið, í svörtum fötum spila góð lög á böllum, svo var skemmt sér bara um helgina, góð helgi.
Eftir helgi tók við... íslenskuverkefni sem gildir 20 % af lokareinkunn, búin með það, svo var það próf í heimspeki í morgun, bílprófið á morgun!! Fyrirlestur í sögu um Siðaskiptin í Skálholti á föstudaginn, fyrirlestur í heimspeki á mánudaginn um ,,hugmyndir Descartes um tilvist guðs".
Nóóóg að gera. Sem er fínt, því mér leiðist svo oft hérna þannig.
Fer svo heim um helgina, það er svo þæginlegt að kíkka hein, verður ennþá skemmtilegra þegar ég er komin með bílprófið. Rúnt rúnt rúnt. Svo er það bara á næstunni að fjárfesta í bíl?
En eins og ég sagði þá er bílprófið á morgun, þannig ég ætla að farað læra, ætla EKKI að falla á því.
Blogga um helgina, lofa, ég hef svo lítið að gera um helgina, fyrir utan að læra og vinna so, ætla koma með gott blogg þá.
Later ppl.
Birgitta Þorsteinsdóttir
01. mars 2007 klukkan 17:42
Ég, slappur bloggari?
neeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeh!
Þið getið öll andað rólega, ég er komin aftur.
Er bara búin að vera á fullu, miðannarprófin að byrja og bílprófið eftir helgi og svona, woohooo.
Var líka í rvk 22-26. Það var bara gaman, hitti fullt af æðislegu fólki, btw, gaman að kynnast ykkur þið sem ég kynntist, og gaman að sjá ykkur hin! Hitti loksins Kristíni, yndi pyndi:* Birkir og Thelma gáfu mér tattoo í afmælisgjöf, takk æðislega fyrir það þið eruð bestust.
En já, það var bara gaman í borginni, skemmtilegra en hér á akureyri, úff, talandi um dauða staði?
En það getur verið svosem ágætt hérna, svo fer ég heim á morgun, hlakka til að sjá alla þar, fjölskylduna, sakna þeirra alltaf jafn mikið. Þessi helgi verður bara róleg, ætla að læra undir bílprófið, feitast, því ég ætla að ná því, ég bara ætla ekki að taka það aftur ef ég fell. En ég er ekki að fara að falla, Hef aldrei fallið í neinu áður og ætla ekki að byrja á því.
Annars hef ég voða lítið að segja e-ð, er búin að liggja bara í leti hérna í dag, starandi uppí loftið og hugsandi, mest verið e-ð að hugsa um framtíðina, sem maður á ekkert að vera að gera, elska bara að live for the moment, en ég leyfi mér nú stundum að hugsa aðeins lengra.
Hlakka svo til að eldast pínu, ekki mikið, bara elska tilhugsunina hvað það er allt framundan, hvað lífið hefur uppá að bjóða, þótt það sé nú ekkert alltaf e-ð frábært, samt elska ég það svo mikið. Elska fallegu vini mína, og ættingja, elska þegar það er fallegt veður úti og þegar ég sé manneskju sem ég þekki ekki neitt brosa til mín. Haha, ég er svo væmin núna, en who gives a fuck.
Vá hvað tíminn er ótrúlega fljótur að líða e-ð. Elska það, en á eftir að hata það eftir svona 20 ár, haha.
Ég er bara bullandi hérna útí annað, somebody stop me.
Það styttist í að ég verði orðlaus, ótrúlegt en satt þá getur það skeð. Writersblock.
Held að ég endi þetta bara hérna á skemmtilegri myndasögu.

;;funny how you expect someone else to make everything better.
but in the end, you will find out that it's you who is responsible for your own happiness.
you have to pick up the pieces of yourself, you can never expect someone else to do that for you.
Birgitta Þorsteinsdóttir
19. febrúar 2007 klukkan 15:56
Hæææ.
Ákvað að blogga smá í tilefni afmælis míns, víí.
Æjj það er svo gaman að eiga afmæli, manni líður svo undanlega.
En efast um að ég ætli að hafa þetta blogg eitthvað langt.
Tek bílprófið vonandi næstu viku, er að verða búin með Ö2, og á hvað 2 verklega ökutíma eftir, sooooo.
Það verður sko rúúntað, hehehe.
Nei ég veit ekki með það, á voða lítinn pening, þarf að farað lleita mér að vinnu.
En jæja, ég ætla að fara að fá mér bollu, því það er nú bolludagur!
Blogga meira seinna, morgun eða e-ð...
later
Birgitta Þorsteinsdóttir
16. febrúar 2007 klukkan 22:43
Já Bára, á morgun segir svo sannarlega sá lati.
Það er oh so true. Ég er mjög löt manneskja á marga vegu, eeeen ég læt það svo sem ekki stoppa mig!!
Sit hérna inní herberginu mínu hjá mömmu og pabba, er semsagt á Siglufirði, það er svo niice að koma heim, hitta fólkið og bara, líður vel hér á sigló, en ekki í of langann tíma í senn. Fínt að koma um helgar. Talandi um helgar þá ætla ég loksins að drulla mér í borgina, oooog á pantaðann tíma í tattoo á föstudaginn, klukkan 5. Víjj, hlakka svo til, er samt ekki alveg viss hvað ég á að fá mér.
Anyway, þá var söngvarkeppin í gær, og við vorum fyrstar á svið, og þetta gekk bara helvíti vel! Og Bára tók þetta svo upp, og þetta var bara flott sko. Var nú bara stressuð útaf engu.
Þetta var ótrúlega gaman að taka þátt, og þið sem lentuð í sæti áttu það innilega skilið, þó ég vildi sjá Brynju og Mundu í sæti, þetta var heavy flott hjá þeim. Og úff, hugrekki að taka Skunk Anansie lag!
..
Ég gerðist loksins svona heimsforeldri, og er að sjá um strák eða borga fyrir skólagöngu, máltíðir, og sjúkrakostnað og eitthvað meira, og var að fá sent þakkarbréf eða svona póstkort með mynd af honum, og upplýsingar um hann, og meira, og ahh, mér líður svo vel að geta gert eitthvað gott, vildi að ég gæti gert eitthvað meira! Þoli ekki að sjá og vita af öllum vandamálum heimsins, vitandi af því að fólk er virkilega að deyja ú hungri, í alvörunni deyja, og öll þessi stríð, og óhamingja, og bara ahhh. Svo erfitt að hugsa um þetta, hvað þá sjá þetta. Svo erum við herna, með allt sem við gætum möguleika haft, og svo dirfist maður til þess að kvarta af og til ?
En ég hvet alla til þess að fara inná www.abc.is og finna ykkur barn til að sjá um, strákurinn minn heitir Isma, og er frá Úganda, valdi sérstaklega barn frá Úganda, því hlutirnir eru mjög slæmir þar. Hann er 4 ára að verða 5 ára. Sætastur í heimigeimi.
Ahh, ég var að koma heim frá Margrét Brynju og Hlyni, ohh elska þau svo mikið. Ég og Margrét horfðum á Dýrin í Hálsaskógi, í svona 4589745 skipti, ooog hún vildi setja grænmetissöngin á, aftur og aftur og aftur og aftur, haha hún er svo mikið æði. Svo var hún að máta föt fyrir mig, algjör pæja. Fékk alveg RISA knús þegar ég kom, sakna hennar svo. Og svo fór ég sma´rúnt með mömmu og Hlyni, og allt í einu kom hann bara, Birgitta, ég skil ekki af hverju sumt fólk er á móti samkynhneigðum, mér finnst það allt í lagi. Og ég bara shit ertu að grínast, ertu sætastur í heimi eða hvað? Hann er 10 ára, með þroska á við 20 ára liggur við! Og ég bara nei Hlynur, ég skil það ekki heldur, og sagði honum frá því hvernig þetta var samt fyrir nokkrum árum, eða nokkrum ártugum, hvað þetta var mjöööööög illa litið á þetta. Og hann bara skil þetta ekki, og svo sagði hann, vá hvað ég er fegin að þú varst ekki til þá. Elska þetta barn, þessi systkini, þau eru svo þroskuð, Bella, hvernig ferðu að þessu!
En látum þetta gott heita, ætla að kíkka í bæinn á fólkið.
later.
What if everyone could eat when they were hungry..?
What if everyone could afford a good education..?
What if everyone were given a equal opportunity..?
What if AIDS disappered ..?
What if more mothers and children would survive the miracle of childbirth..?
What if we could make this happend, by working together..?
Birgitta Þorsteinsdóttir
13. febrúar 2007 klukkan 00:49
Bara lítið blogg.
Stærra á morgun??
Er semsagt nýlega komin heim að æfingu hjá hmm hljómsveitinni?
Ég er já, að fara að taka þátt í söngvarkeppninni með stelpunum, hlakka heavy til!
Ætlaði bara að segja að ég var að setja inn myndir frá helginni, þær eru nú ekkert margar, mest af Margrét Brynju sætu sætu.
Annars hefur fátt gerst í lífi mínu undanfarna daga? Hitti kennara heima um helgina, og hún sagði mér að hún læsi bloggin mín, væri gaman að fylgjast með mér og að ég væri góður penni, djöfull var ég ánægð með það! Endilega haltu áfram að lesa, sakna ykkar kennaranna frá sigló! Sakna bara sigló yfir höfuð, þótt ég væri nú ekki alveg til í að búa þarna alltaf, finnst æðislegt að koma yfir helgar og þannig. Annars held ég að ég fari að flytja bráðlega í borgina, er best geymd þar, hehe. Er að fara þangað núna 22. og verð í nokkra daga, fá mér tattoo, eða Birkir yndislegi bróðir ætlar að gefa mér það í afmælisgjöf og mamma og pabbi, yndislegu froeldrar mínir leyfa það, hehe.
Er að spá í að fá mér japanskt merki, eða virðing á japönsku, kanji skrift. Búin að spá í því í mörg ár, langar heavy mikið í það. Hvað finnst ykkur?? Einhverjar hugmyndir??
En jæja, látum þetta gott heita, ég blogga meira seinna, mjög bráðlega, lofa.
later..
;;í gegnum frosin tárin stari ég í nóttina
heitt ég þrái að þú komir aftur og allt verði eins og það var
í gegnum frosin tárin stari ég í nóttina
og ég spyr mig sjálfa hvers vegna en ég finn ekkert svar.
Birgitta Þorsteinsdóttir
09. febrúar 2007 klukkan 20:22
Ég veit aldrei hvernig ég á að byrja þessi blessuðu blogg.
but here i go..
Ég er víst komin heim á sigló, það er svo sem fínt, þæginlegt að koma heim um helgar, fá góðann mat og aðeins að hanga. veit samt ekki hvað ég á að gera um helgina? any ideas?
Ég fer í klippingu á morgun, hlakka til! Hef samt ekki huuugmynd hvað ég á að gera??
Einhverjar hugmyndir fólk ????
Síðasta vika er búin að vera góð, fljót að líða eins og flestar vikurnar á Akureyri, skrýtið en satt. Tíminn gjörsamlega flýgur, ég fer í skólann, kem heim og læri e-ð og heng og geri ekkert, samt er tíminn svo fljótur að líða. Svo fer ég í ræktina um kvöldið, svo kem ég heim drulluþreytt, fer í tölvuna og sofna.
Mjög einhæft líf e-ð. En það er fínt, maður er umkringdur vinum allan tímann svo, verð nú að viðurkenna að ég er búin að vera mjög einmanna síðastliðnu daga, og voða down e-ð..
En ætla nú ekki að fara að lýsa því neitt í smáatriðum, bara ennþá gnístandi sársauki í hjarta mínu...
En það þýðir ekki að vera alltaf vælandi allt sitt líf, because life is gooood. Eða á til að vera mjöööög svo gott. Þegar ég hlusta á einhverja fallega tónlist, eða textinn er svo fallegur, og þegar ég horfi útum gluggan og sé hvað það er fallegt úti, og horfi á fólkið í kringum mig, hlægja og skemmta sér, þegar ég sé fallegt og spennandi fólk, þegar ég kynnist nýju fólki þegar ég er umkringd góðum vinum, hugsa um liðna góða tíma, þá hugsa ég með mér, vá hvað lífið getur verið gott, þótt það sé stundum fokkings rugl í gangi sem þú ræður ekki við, þá hefur lífið uppá svo mikið að bjóða. Þú lifir bara einu sinni?
Eða hver veit, ég meina þú veist það ekki, af hverju þá ekki að hugsa þannig, og lifa lífinu til fulls, og gera það besta út úr því, meðan þú getur, því tíminn er svo fljótur að líða! Það er alveg ótrúlegt, finnst eins og í gær þegar ég hafði mig til fyrir fyrsta skóladaginn minn, 6 ára, lítil og feimin og vissi ekkert við hverju ég ætti að búast við. Svo 10 árum seinna hafði ég mig til fyrir fyrsta daginn í framhaldsskóla, og vissi heldur ekkert við hverju ég ætti að búast þá, nýr skóli, nýtt fólk, og maður stóð eins og fáviti með kort í hendinni og reyna að leita af stofunni sinni.
Svo er sú önn búin, og strax komin önnur, og hún er að verða hálfnuð! Ég að verða 17 ára eftir nokkra daga. Ég hef alltaf verið mjög sjálfstæð, en það er alltaf svo gott að geta gripið í mömmu um hjálp við hitt og þetta, en svo er ég bara að fara flytja út, og farin að sjá um mig sjálf. Og ég sit hér eftir, eftir frábært uppeldi, bæði frábæra og ömurlega reynslu í lífinu, og er hent útí raunveruleikann, og nú er bara komið að mér, sýna hvað í mér býr.
Tíminn er of mikilvægur til þess að sóa og eyða í eitthvað rugl, trúið mér, ekki vera að væla yfir einhverju sem gerðist, ef einhver særði ykkur bara mestast, þá er tíminn sem fer í að líða illa útaf manneskjunni svo mikil sóun. Spáðu í hvað manneskjan særði þig mikið, er hún virkilega þess virði að eyða þínum verðmæta tíma í vanlíðan?
Ég veit ekkert hvað býður mín eftir næstu önn, næsta ár, eða næstu ár, ég vil ekki hugsa um það, hugsa aldrei svona langt fram í tímann.
En nóg af þessu blaðri í mér...
Haha, ég byrjaði að blogga og vissi ekki rasssgat hvað ég ætlaði að skrifa. En þetta er allavega eitthvað handa ykkur ;)
Ætla að fara að læra í heimspeki.
if half of what you said is true
and half of what i didnt do
could be different would it make it better
if we forget the things we know
would we have somewhere to go
the only way is down i can see that now
cause i dont care if i ever talk to you again
this is not about emotion
i dont need a reason not to care what you say
or what happened in the end.
;;farðu nú að virða tilfinningarnar mínar.
Birgitta Þorsteinsdóttir