Ég blogga í kvöld my ass. En jæja, ég er loksins sest hér niður til þess að uppfæra ykkur um mitt skemmtilega líf. Búin að pakka e-ð niður ásamt því að taka til, sem veitti ekki af. Var búin að skrifa hér oh svo margar línur en vill svo skemmtilega til að þær bara hurfu, aaaaarghh.. Anyway, þá er ég að farað taka bílprófið á morgun, þá verklega. Það á nú ekki að vera neitt alltof erfitt, bara svara nokkrum spurningum, keyra, bakka í stæði, passa sig á hægri reglu því hún er svo andskoti lúmsk hérna á akureyri skal ég segja ykkur! Svo er það bara að passa sig að drepa ekki neinn og já, gefa stefnuljós, haha. En krakkar mínir, það verður sko rúntað um páskana. ooooohh yeeeeaah. Ég er að segja ykkur það er svo gott veður, það er ótrúlegt hvað maður fer í gott skap við það að hafa gott veður, eina sem mig langar að gera núna er að rúúúnta með tónlistina blastaða útum allt. Thatðs the way to do it on a sunny day! .... var að velja áfanga fyrir næstu önn, og þeir munu vera skal ég segja ykkur.. íslenska 112, enska 303, danska 202, spænska 103, náttúrufræði 113, stærðfræði 262, sálfræði 103 og jóga eða þrek. Kom ekki meiru að, eins og félagsfræði 303 og sögu 203, því þá myndi ég bara allllllltaf vera í skólanum, þannig þarf að dreifa þessu aðeins, langar bara að klára þetta, það er svo gaman að hafa þessa menntun ða baki sér, þótt maður sé nú stundum latur að læra. ..páskar, páskar, páskar, hlakka til að fara heim, birkir og thelma eru að koma, skötuhjúin búin að trúlofa sig og kaupa heila íbúð! ekki slæææmt, svo er fullt af fólki á leiðinni á sigló, right? That's the party place, DJ Páll Óskar í bíó café 4. apríl og læææti. Svo er það brettti og vinna og hafa gaman af lífinu? Ég elska lífið svo þegar það er svona gott veður, loooove it. Mamma hringdi áðan og bara, Birgitta, Alex er að deyja! oooog ég fékk tár í augun, hún sagði að hann væri allur orðin grár og augun að detta útúr honum, og að hann væri bara öfugur og gæti ekkert hreyft sig, þannig ég sagði henni að drepa hann, því vill ekki að hann kveljist. Þannig að Alex er dáinn núna. Litli fallegi fiskurinn minn, þú varst svo svalur.
En jæja, life goes on. Nú eru bara ljótu appelsínugulu fiskarnir eftir sem ég vildi ekki einu sinni kaupa, einn af þeim er svalur, þessi minnsti, hann er orðin smá svartur nefninlega núna, kriz heitir hann. Hahahaha, ég er virkilega búin að vera hér í djúpum hugleiðingum um fiskana mína, spes. En ég held að það sé nú ekkert mikið meira eftir nema að kveðja og vonast um að ég drullist til að blogga bráðlega aftur? Þið bara verið að nöldra. Komnar einhverjar myndir, frá síðustu helgi og svo e-ð síðan við árgangur '90 vorum lítil. btw, bekkjahittingur um páskana?? sakna ykkar.
Ætlaði bara að láta viða af myndum. Myndir frá helginni, þær eru nú ekkert þa margar, en þó nokkrar. Get því miður ekki bloggað því er að fara að gera e-ð félagsfræðiverkefni ásamt því að læra undir bílprófið. Loksins búin með báða fyrirlestrana mína; Hugmynd Descartes um tilvist guðs - Heimspeki 103 & Siðaskiptin í Skálholti - Saga 103. Þeir tókust bara vel, en bara það er ótrúlegt hvað ég er e-ð inní mér þegar ég á að tala fyrir framan bekkinn, eins og ég er ekki feimin? En það er búið að vera nóg að gera, búin að fá útúr nokkrum miðannarprófum og það kom bara vel út þannig ég er alveg að standa mig sko. Ætla að fara að læra, blogga seinna.
Ég er að blogga, like I said, að ég mundi blogga um helgina. Er reyndar að fara á bretti núna, missit af stelpunum áðan því að sumir voru blindfullir einhversstaðar og drápust og ekki hægt að ná á þeim fyrr en seint um daginn? Hahahaha, en er að fara núna, úú hlakka til. Anyways þá var bara komið heim um helgina, tekið því rólega, einum of kannski? Ég kom heim og fyrsta sem ég byrjaði á að gera var að fá mér að éta, og ég hef ekki stoppað. Ég sit hér og sé mig fitna! Án gríns. Gegnur ekki, er að fara að kaupa mér annað kort í ræktina á mánudaginn, og ætla að vera hyperassmotherfucker næsta mánuð. Ohhh yeaah, svo þegar ég kem aftur heim um páskana, þá verð ég vonandi skinny, grönn og komin með bílprófið!! Þá verður slagur um shotgun-ið ?
..fór ekki á bretti, þarf að vinna klukkan 5 þannig það tekur sig ekki að fara, langaði svo!! en þarf að vinna... god damn it! en fer á morgun, snemma um morguninn, wooohooo.
hef voða lítið að segja, síðustu dagar hafa verið jaa well, ekkert sérlega góðir né skemmtilegir. þoli ekki að vera í vondu skapi, þegar allt er ómögulegt, og maður nennir ekki einu sinni út úr húsi. þoli það ekki heldur þegar manni líður þannig, og verður að fara út úr húsi. pffft. en ég elska samt hvað það er oft lítið sem tekur til þess að gleðja mann, oft þarf ég bara að hugsa um fallegu vini mína, og hvað maður á það gott, þótt maður sé ekki alltaf sáttur. ooooh boy here I go again, ég er svo fokking væmin. nei ég er bara að taka smá tíma til þess að vera þakklát, því ég er alltaf e-ð að kvarta, þótt ég fari ekkert með það lengra, held því bara fyrir mig svo fólk haldi ekki að ég sé sjálfselsk. en mér er sama, fólk má halda það sem það vil um mig, ég veit það rétta, og vinir mínir, þá er ég sátt. en heyra í mér, blaðrandi út í allar áttir, somebody put a stop on me. ég er alveg orðin lost í þessu bloggi. hehe ég elska hvað maður er fucked up e-ð, t.d. með mig, þá er ég alltaf á ákveða e-ð geðveikt mikið með lífið, ekki að ég sé að hugsa e-ð langt fram í framtíðina, heldur bara e-ð svona "ohh, hvað ég ætla að vera dugleg og skipuleggja allt námið og fara eftir því" eeeða "ég ætla að grennast núna, og geri plan sem ég fer alveg eftir" og e-ð svona, maður gerir þetta alltaf svona í sérstöku stuði, eða stöðu sem þú ert í þegar þú hugsar um hvað er framundan, og hvað þú ætlar að gera lífið léttara með þessu. svo eftir þetta rush sem þú færð, þá einfaldlega nenniru þessu ekki og beilar. sama gildir með þegar þú tekur geeeðveikt vel til, og ætlar svo að halda þessu svona, og svo bara púfff, daginn eftir allllt í rúst. það skal ég segja ykkur skeður oooft við mig. sama með að grennast eða með námið, eeeen veistu, ég keypti mér kort í ræktina um daginn, og fór á hverjum degi og viti menn, ég grenntist og fékk meira segja vöðva! og svo núna, þegar kortið er búið, og ég á ekki pening, þá er ég farin að fiiiitna aftur. eeen til allra hamingju á ég yndislega foreldra sem gáfu mér annað kort í ræktina, og ég er að fara að byrja aftur á mánudaginn like a crazy monkey on steroids. það er mjög mikilvægt að vera í góðu formi, mér finnst það, líður mun betur, sem er einmitt einn partur af því að gera lífið einhvernveginn einfaldara og betra, veit ekki alveg hvernig, en það bara gerir það. og ég ætla svo ekki að falla á einhverju á þessarri önn, og ég bara verð að verða aðeins meira skipulaggðari með lærdóminn, ekki að ég sé e-ð að ganga illa í skólanum, alls ekki, ég sinni lærdómnum, er bara alltaf á seinustu stundu með þetta, sem er ekki gott. en mér gengur samt vel, búin með nokkur miðannarpróf, og búin að fá útúr miðannarm-tunum, og er alveg með 7 og yfir í öllu, eða það er gefið í A,B,C,D og F. Og ég var með A og B í mest öllu, öllu nema stæ, þarf að fara að taka mig á þar, gengur svo helvíti í henni, stæ 122, verð að fara að fá mér hjálp þar. Annars allt hitt, þá gengur mér rosalega vel í, 2 fyrirlestrar í næstu viku, mán. og þriðjudaginn, svo er það bílprófið á fimmtudaginn, og eins gott að ég nái því, annars fer ég að gráta, enda búin að læra mikið, og ætla að halda áfram að læra meira. læra læra læra, það er eins og lífið snúist ekki um neitt mikið annað? ég tel samt lífið hafa mun meira gildi, þótt að menntun sé þar stór partur, ójá. og get ekki beðið eftir að ég sé búin að mennta mig alveg, og fara að vinna við það sem ég hef áhuga á, og þéna mikinn pening, og þá getur maður farið ða njóta lífsins, þótt það sé nú gott á þessum árum, svoldið svona yfirburðamikið, erfitt á þessum árum sérstaklega, tilfinningasukk og drama drama drama, name it, en hvað ætlaru að gera í því, þú verður auðvitað bara að takast á við vandamál þín, læra af mistökum þínum, og bara lifa lífinu, helst heilbrigðu, því eins og ég hef oft sagt og mun segja aftur, lífið hefur upp á svo mikið að bjóða!
En nóg af þessu bulli, ég tek af ofan fyrir þeim sem virkilega lásu þetta allt. later. bri.
;;just close your eyes, forget your name, forget the world, forget the people.
hey hey hey. ég er hér, ég er ekki dauð! bara búið að vera crazy mikið að gera hjá mér. viljiði vita það?? í síðustu viku voru 3 miðannarpróf, félagsfræði, sögu og ensku. gekk svo sem vel í þeim öllum, allavega náði þeim. og svo um helgina var árshátíð hjá vma, það var bara heavy gaman. Fór bara á ballið, í svörtum fötum spila góð lög á böllum, svo var skemmt sér bara um helgina, góð helgi. Eftir helgi tók við... íslenskuverkefni sem gildir 20 % af lokareinkunn, búin með það, svo var það próf í heimspeki í morgun, bílprófið á morgun!! Fyrirlestur í sögu um Siðaskiptin í Skálholti á föstudaginn, fyrirlestur í heimspeki á mánudaginn um ,,hugmyndir Descartes um tilvist guðs". Nóóóg að gera. Sem er fínt, því mér leiðist svo oft hérna þannig.
Fer svo heim um helgina, það er svo þæginlegt að kíkka hein, verður ennþá skemmtilegra þegar ég er komin með bílprófið. Rúnt rúnt rúnt. Svo er það bara á næstunni að fjárfesta í bíl? En eins og ég sagði þá er bílprófið á morgun, þannig ég ætla að farað læra, ætla EKKI að falla á því. Blogga um helgina, lofa, ég hef svo lítið að gera um helgina, fyrir utan að læra og vinna so, ætla koma með gott blogg þá. Later ppl.
Ég, slappur bloggari? neeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeh! Þið getið öll andað rólega, ég er komin aftur. Er bara búin að vera á fullu, miðannarprófin að byrja og bílprófið eftir helgi og svona, woohooo. Var líka í rvk 22-26. Það var bara gaman, hitti fullt af æðislegu fólki, btw, gaman að kynnast ykkur þið sem ég kynntist, og gaman að sjá ykkur hin! Hitti loksins Kristíni, yndi pyndi:* Birkir og Thelma gáfu mér tattoo í afmælisgjöf, takk æðislega fyrir það þið eruð bestust.
En já, það var bara gaman í borginni, skemmtilegra en hér á akureyri, úff, talandi um dauða staði? En það getur verið svosem ágætt hérna, svo fer ég heim á morgun, hlakka til að sjá alla þar, fjölskylduna, sakna þeirra alltaf jafn mikið. Þessi helgi verður bara róleg, ætla að læra undir bílprófið, feitast, því ég ætla að ná því, ég bara ætla ekki að taka það aftur ef ég fell. En ég er ekki að fara að falla, Hef aldrei fallið í neinu áður og ætla ekki að byrja á því. Annars hef ég voða lítið að segja e-ð, er búin að liggja bara í leti hérna í dag, starandi uppí loftið og hugsandi, mest verið e-ð að hugsa um framtíðina, sem maður á ekkert að vera að gera, elska bara að live for the moment, en ég leyfi mér nú stundum að hugsa aðeins lengra. Hlakka svo til að eldast pínu, ekki mikið, bara elska tilhugsunina hvað það er allt framundan, hvað lífið hefur uppá að bjóða, þótt það sé nú ekkert alltaf e-ð frábært, samt elska ég það svo mikið. Elska fallegu vini mína, og ættingja, elska þegar það er fallegt veður úti og þegar ég sé manneskju sem ég þekki ekki neitt brosa til mín. Haha, ég er svo væmin núna, en who gives a fuck.
Vá hvað tíminn er ótrúlega fljótur að líða e-ð. Elska það, en á eftir að hata það eftir svona 20 ár, haha. Ég er bara bullandi hérna útí annað, somebody stop me. Það styttist í að ég verði orðlaus, ótrúlegt en satt þá getur það skeð. Writersblock. Held að ég endi þetta bara hérna á skemmtilegri myndasögu.
;;funny how you expect someone else to make everything better. but in the end, you will find out that it's you who is responsible for your own happiness. you have to pick up the pieces of yourself, you can never expect someone else to do that for you.