Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Birgitta Þorsteinsdóttir
  • Netfang: birgittathorsteins@hot.
  • Staður: Siglufjörður
  • Símanúmer: 8661975
  • Atvinna: Gjaldkeri
  • Hjúskaparstaða: Svo mikið á lausu

Birgitta Björk

Innskráningar kubbur

engin spurning um trú.

30. nóvember 2007 klukkan 04:05
Ég ákvað að byrja ekki þetta blogg á jææææææja, eins og ég hef gert öll hin milljónustu skiptin, já ég blogga þaaaaaað oft. Allavega þá eigið þið lesendur mínir kannski þann rétt á því að vita hvað er að gerast í lífi mínu þessa dagana? Okay, ég er að fara í 6 mánaða afeitrun og meðfer í Hvalfirðinum, eftir helgi, ég klessti nýja bílinn minn í fyrradag og hann er handónýtur, ég er heppin að vera á lífi, en ég hafði þetta af, mamma og pabbi eru skilin og ég veit ekki hvar pabbi er staddur núna, mamma hélt húsinu, en áður en ég held lengra með þetta og þeir sem þekkja mig vita auðvitað þetta var eitt stórt djók. ha-ha-ha. Ég var ekki kosinn húmoristi skólans fyrir ekkert haaaaa? Eins og færi að blogga e-ð svona, tssss.
Nei það er allt gott að frétta, er stödd á Siglufirði í augnablikinu, og er well aftur flutt þangað, skutlast til þess að taka prófin mín og svo er ég alveg komin aftur, í nokkra mánuði bara, róóleg. Vantar bara pening og svona, þannig ákvað að fara bara í smá fjarnám eftir áramót og vinna, fer svo í skóla aftur í haust. Er komin með vinnu á Pizza 67 sem er mjög fínt, og svo bíð ég eftir fréttum frá Kaupþingi um vinnu þar vonandi eftir áramót. Þannig busy busy money money. Get ekki kvartað vegna peninga haaa?
Nú ef ég verið á Siglufirði í hvað, 2 vikur? Úff hvað það er lonely hérna, en það lagast bráðlega, búin að vera dugleg að stunda ljósabekkina hérna í nýju sólbaðstofunni, Norðurljós, sem er baaara flottur staður, svo snyrtilegur og flottur og geggjaðir lampar, þannig hún Sandra má alveg vera stolt af þessu hjá sér. Það bara vantar svo margt hingað, sem er ekki hægt að framkvæma vegna þetta er svo lítill staður, fínt að koma hingað til þess að slappa af og svona, æðislegt fólk hérna auðvitað, en of lítið fyrir mig, þótt ég auðvitað elska þennan stað. En núna um helgina erum ég, Una og Hafey að fara að skella okkur á tónleika með Hjálmum, sem verða haldnir á Siglufirði, ójá þið heyrðuð rétt! Nýji diskurinn þeirra er æði! Bara fallegu textarnir hjá þeim, lagið Leiðin okkar allra, er bara to die for. Ég dýrka hvað Ísland á marga sjúklega góða tónlistarmenn, og hvað Íslendingar eru fróðir um tónlist, bara ahh elska Ísland.
En jæja, hehe jæææææja. Spá í að leggja mig, er já btw. að fara á aðra tónleika á morgun, með Ellen Kristjáns og KK, ekki slæmt! Ég kveð í bili.


;;allt það sem þú hefur,
er það sem þú gefur,
nákvæmlega það sem þú munt fá,
engin spurning um trú,
þetta er lögmál og þú
getur alls ekki komist því hjá.
Birgitta Þorsteinsdóttir
5 athugasemdir